laugardagur, október 29, 2005

Eftirlýstir eigendur

Töluvert virðist vera um óskilamuni á Bakkanum eftir afstaðnar göngur og réttir með tilheyrandi. Vegna óskýrðs tiltektaræðis sem greip húsráðendur báða í dag, er hafin flokkun og eignagreining. Er hér með lýst eftir eigendum nokkurra vel valinna eigna.

Rauð peysa með rennilás ásamt rauðum hlýrabol. Var í Hagkaupspoka á gólfinu í skrifstofunni. Virðist vera nýtt eða mjög lítið notað.

Lítið forláta perluskreytt skrín. Var í poka frammi í forstofu.

Svartar legghlífar, grunaður eigandi Bjarki Birgisson.

Framhald síðar.....

fimmtudagur, október 27, 2005

Fór ég aðeins of snemma á fætur í morgun???
Skutlaði Lilju Dögg í skólann.
Keyrði í vinnuna.
Læsti lyklana inni í bílnum...
Glotti því ég er svo forsjál að eiga aukabíllykil í vinnuni (ég byrjaði nebbnilega að verða svo gleymin fyrir tæpu ári síðan að ég læsi alltaf öðru hvoru lyklana inni í bílnum og hef því dreift lyklum hingað og þangað um bæinn)
Hljóp upp þrjár hæðir, og niður aftur með bíllykilinn.
Opnaði bílinn.
Sá að hann var allan tíman ólæstur þeim megin sem Lilja Dögg fór út...

fimmtudagur, október 20, 2005

jæja jæja....

Vegna fjölda áskorana hefur húsfreyjan sest við tölvuna á ný og munu æsispennandi fréttir nú streyma frá fingrum hennar á ný.... (vonandi)

Þegar öllu er á botninn hvolft, þá er nú heilmikið að frétta úr sveitinni og ber þar fyrst að nefna að slátrun er að fullu lokið og hljóða lokatölur upp á 16,2 kg fallþunga, meðaltal fyrir gerð 9,01 og meðaltal fyrir fitu 7,07.

Það verður að viðurkennast að ábúendur misstu sig lítillega þegar kom að ásetningnum og endaði hann í 120 gimbrum og 8 lambhrútum. Húsbóndinn hefur síðan það kom í ljós staðið sveittur við endurbætur á norðurenda minkahússins/vélaskemmunnar til að einhvers staðar verði nú til húspláss fyrir allt það fé sem verður á fóðrum í vetur. Á meðan þvælist húsfreyjan út um allar koppagrundir að skoða líflömb á bæjum í Húnavatnssýslum og lætur vart sjá sig heima fyrir nema rétt til að festa blund yfir blánóttina. Það mun þó vera farið að sjá fyrir endann á því, þar sem útlit er fyrir að takist að slátra síðustu lömbum í sýslunni í byrjun næstu viku og hæpið að velja mikið af líflömbum úr þeim þegar svo er komið.

Búið er að taka gimbrarnar á hús og rýja þær inn að skinni, en rúningsmaðurinn frækni Bjarki á Breiðavaði var fenginn til verksins að þessu sinni.

Verið er að vinna í nöfnum á hrútana og eru allar ábendingar vel þegnar, þó svo ábúendur áskilji sér rétt til að velja hvaða nöfn sem er eða hafna öllum ef svo ber undir. Kaupahrúturinn frá Presthólum heitir að sjálfsögðu Lárus eftir henni Láru okkar og þá fannst okkur við hæfi að nefna einn þrekinn Gárason, rauðan í hnakka Maríus og ganga þeir dagsdaglega undir nöfnunum Larri og Marri.... Þá eru eftir nöfn á 6 hrúta, en þeir eru 2 Straumssynir, 1 Gárasonur, 1 Lómssonur, 1 Eldarssonur og 1 Sindbaðssonur Soldánssonar.

Þá er nú farið að tínast úr fréttapokanum að sinni, en vænta má æsifrétta að lokinni helgi, þar sem Erla, Kristín Birna, Jói, Kristján Hróar og kannski fleiri ætla að streyma norður um helgina.

þriðjudagur, október 04, 2005

Från flickan i Sverige…

Flakkarinn er núna í Svíþjóð en dvölin þar er nú óðum að styttast í réttan enda. Ég flýg heim á leið seinnipartinn á morgun og lendi nokkrum klukkutímum fyrir næsta ferðalag (til Ljúblíana).

Dvölin hérna er búin að vera stutt og alveg ágæt. Ég hef búið í nokkurn vegin galtómri íbúð í Dalby sem er stutt frá Lundi, það þýðir að í íbúðinni er reyndar rúm en þá eru innanstokksmunir upptaldir og loftljós eru af skornum skammti (það er svona að ætla að spara leigupeninga). Þetta kemur þó ekki að sök þar sem ég þamba bara drykkjarjógúrt í morgunmat, sötra svo bjór þegar ég kem heim seint á kvöldin eftir að hafa étið pizzu með skinku, banönum og karrý einhversstaðar í nágrenninu. Fyrripart nætur rölti ég svo um íbúðina í svefni, ekki mikil hætta á að ég hnjóti um innanstokksmuni í þeim göngutúrum þar sem allt er tómt, en nýti strætó til ferðalaga að degi til. Öllum peningunum sem ég hef sparað við ódýra leigu tókst mér svo samviskusamlega að eyða um helgina í búðarráp í borginni hinum megin við Eyrarsundið…

Frá Holtinu mínu berast skemmtilegar fregnir, Lilja Dögg er komin með bílpróf! Til hamingju með það :-)

Hej då

This page is powered by Blogger. Isn't yours?